Jólagjafir 2026: skemmtileg veggspjöld sem gjöf | ybba
Share
Byrjaðu snemma að hugsa um jólagjafirnar
Október er góður tími til að velja jólagjafirnar, áður en tími og birgðir fara að þrengjast. Veggspjald er gjöf sem lítur vel út strax og hangir uppi árum saman, og með réttum frasa verður hún að umræðuefni í hvert sinn sem einhver kemur í heimsókn.
Öll veggspjöld frá ybba eru íslensk hönnun og prent, prentuð á mattan Munken pappír. Verðið byrjar í 4.990 kr. Hér að neðan er yfirlit yfir hvað hentar hverjum, hvaða veggspjöld gætu hitt í mark og hvernig þú pantar svo gjöfin sé komin í tæka tíð.
Jólagjafir eftir viðtakanda
Húmor virkar best þegar veggspjaldið passar manneskjunni. Hér eru hugmyndir fyrir sex hópa, með veggspjöldum sem eru fáanleg.
|
Viðtakandi |
Veggspjald |
Af hverju það virkar |
|---|---|---|
|
Pabbi |
Pabbar eru snjallir, eða halda það allavega. |
|
|
Unglingurinn á heimilinu |
pabbi geturu skutlað mer? og Mun þetta hafa áhrif á fortnite netþjónanna? |
Setningar sem unglingar kannast við |
|
Vinkona eða kærasta |
Fæst í tengiskrift eða handskrifuðu. |
|
|
Mamma eða amma |
Fyrir mömmu eða ömmu með góðan húmor. |
|
|
Fyndni vinurinn |
Gjöf sem má alveg segja upphátt. |
|
|
Makinn eða heimilið |
Passív-agressíf áminning með húmor, í nokkrum litum. |
Nýju veggspjöldin fyrir jólin
Nýjustu veggspjöldin eru stílhrein 30x30 cm í þremur litum og henta vel sem lítil gjöf með húmor.
- Þú mátt alveg ryksuga: 4.990 kr., fæst í navy, olive, orange og bleiku.
- Geturðu sett í vél?: 4.990 kr., sama litaúrval.
Þau eru sérstaklega góð í innflutningsgjöf, jólapakka í vinnunni eða handa þeim sem á allt nema húmor.
Sérpantað veggspjald með þínum eigin frasa
Besta gjöfin er oft sú sem enginn annar á: frasi frá vini, pabba, mömmu eða fjölskylduslagorðið sem allir kannast við. Hjá ybba getur þú sérpantað veggspjald með þínum texta, eða sent línu á ybba@ybba.is.
- Verð á sérpöntun: frá 5.990 kr
- Afgreiðslutími sérpöntunar: 3-5 virkir dagar
- Síðasti pöntunardagur fyrir jól: 18.des
Hvenær á að panta, afhending og gjafapappír
Pantaðu snemma, því sum veggspjöld eru til í einu eintaki og sérpantanir taka lengri tíma en þær sem eru á lager.
- Pantanir eru afgreiddar á 1–2 virkum dögum.
- Sérpantanir: 18.des
- Vertu búin(n) að velja áður en jólaösin byrjar í desember.
Algengar spurningar
Hvað eru veggspjöldin stór? Flest eru 30x40 cm, og 30x30cm. Yfirleitt er hægt að sérpanta stærri stærðir.
Fylgir rammi með? Nei, veggspjöldin eru seld án rámma.
Get ég látið pakka gjöfinni inn í gjafapappír? Nei því miður.
Er hægt að fá sérprentað veggspjald með eigin frasa? Já, sjá sérpantanir eða sendu póst á ybba@ybba.is.
Hvenær ætti ég að panta fyrir jól? Helst í nóvember. Pantaðu sérpantanir enn fyrr, fyrir 18.des