Ybba er komin aftur — ný plaköt og afsláttur út september
Share
Það hefur verið rólegt hjá okkur um tíma, en núna er Ybba.is komin aftur í gang.
Síðustu mánuði hefur ybba.is legið í smá dvala, en það þýðir ekki að hugmyndirnar hafi gert það. Núna erum við mætt aftur með nýjum plakötum á leiðinni, uppfærða síðu og sömu ástríðuna og alltaf fyrir að hanna falleg veggspjöld fyrir íslensk heimili.
Afsláttur út september
Til að fagna endurkomunni bjóðum við 20-70% afslátt af öllum plakötum í versluninni bæði gömlu þekktu veggspjöldunum og þeim nýju sem eru að detta inn. Afslátturinn gildir út september, svo það er tilvalið að grípa tækifærið og gera vegginn heima aðeins hlýlegri fyrir haustið, eða jafnvel vera snemma í því fyrir jólagjafirnar.
Hvað er á leiðinni
Fleiri ný plaköt eru í vinnslu og munu birtast á síðunni á næstu vikum — fylgstu með á Instagram og Facebook til að missa ekki af því þegar þau detta inn.
Kíktu við
Farðu inn á ybba.is og skoðaðu úrvalið. Takk fyrir að hafa fylgt okkur og fyrir þolinmæðina á meðan hlé var gert
Við hlökkum til að halda áfram.